Hvað fór úrskeiðis?

Hér er umræðan um allt sem tengist Arsenal F.C.

Moderator: Stjórnandi

Hvað fór úrskeiðis?

Postby Elfa » Mon Apr 19, 2010 9:39 pm

Að sjálfsögðu getur maður ekki annað en pælt í því hvað fór úrskeiðis á þessu tímabili. Fyrir mitt leiti eru það fyrst og fremst öll þessi meiðsli. Sumir vilja meina að það þýði bara að Arsenal hafi ekki nægilega breidd, en ég held að ekkert lið yrði ekki fyrir áhrifum af því að hafa 5-6 byrjunarliðsmenn óleikhæfa stóra hluta tímabilsins.

En í grunninn var það sem gerðist auðvitað að við töpuðum fleiri stigum en liðin fyrir ofan okkur. Arsenal hefur tapað stigum gegn 11 liðum á tímabilinu á meðan Manchester United og Chelsea hafa tapað stigum gegn 9 liðum. Hér fyrir neðan má sjá hvar liðin töpuðu stigum:

--------------------------------Arsenal------------Manchester United----------------------Chelsea
Stig töpuð samtals--------------34-----------------------29------------------------------------28
Chelsea----------------------------6------------------------6
Manchester United---------------6
Tottenham------------------------3----------------------------------------------------------------3
Manchester City------------------3----------------------------------------------------------------6
Liverpool----------------------------------------------------3
Aston Villa-------------------------2------------------------5--------------------------------------3
Everton----------------------------2------------------------3--------------------------------------5
Birmingham-----------------------2------------------------2--------------------------------------2
Fulham------------------------------------------------------3
Blackburn---------------------------------------------------2--------------------------------------2
Sunderland------------------------3------------------------2
Wigan-----------------------------3----------------------------------------------------------------3
West Ham------------------------2----------------------------------------------------------------2
Hull-------------------------------------------------------------------------------------------------2
Burnley----------------------------2------------------------3


Á þessu sést að það eru gjarnan sömu liðin sem við erum að tapa stigum gegn og því væri e.t.v. rétt að segja að við höfum tapað tímabilinu í innbyrðisviðureignunum, þar sem við töpuðum öllum stigunum þar. Auðvitað eigum við ennþá eftir að spila við City, Blackburn og Fulham (öll lið sem Chelsea og Man.U. hafa tapað stigum gegn) svo við eigum enn möguleika á að gera tímabilið enn verra. Hins vegar eiga Chelsea líka eftir að spila gegn Liverpool og Manchester United gegn Tottenham og Sunderland svo þau eiga líka möguleika á að tapa stigum, ekki það að það hjálpi okkur neitt, en væri e.t.v. gott fyrir stoltið.
Elfa
 
Posts: 32
Joined: Tue Oct 13, 2009 12:58 am

Re: Hvað fór úrskeiðis?

Postby okey » Mon May 03, 2010 7:23 pm

Það er farið að verða frekar sársaukafullt að vera fylgismaður Arsenal þessi síðustu ár. Hef verið það síðan 1972 og man langt,langt,langt,langt tímabil þar sem áhuginn á Arsenal var í lágmarki, miðlungs lið með miðlungs metnað. Svo kom Wenger og gerði kraftaverk og sennilega var þetta 5-6 ára tímabil hjá honum kraftaverk vegna þess að það var allavegana ekki uppbyggingartímabil, það sýnir árangurinn síðustu ár og hápunktinum á metnaðar og getuleysinu var náð á þessu ári. Wenger er minn maður en ég er farinn að hafa áhyggjur af honum hjá Arsenal þegar lið eins og Wigan og Blackpool eru farinn að vinna okkur án þess að það vekji neitt mikla athygli, var alveg eins líklegt og hvað annað og maður farinn að freistast á lengjunni til að "græða" með því að treysta á tap Arsenal. Nú er enn einu tímabili að ljúka þar sem spennan er algjörlega farinn úr leikjum Arsenal og ja kannski verður þetta 4.sæti eins og venjulega og Tottenham hirða það 3ja. Verra verður það ekki. :D
Eyjólfur Valgarðsson.
okey
 
Posts: 65
Joined: Sat Aug 22, 2009 11:26 am

Re: Hvað fór úrskeiðis?

Postby sigvardur » Wed May 05, 2010 10:21 am

Það er svona að sjá á síðustu leikjum Arsenal að það sé enginn áhugi fyrir hendi, til að klára leikina. Það er samt að vona að Tottenham og Man City, geri bara jafntefli... og síðan ætti síðasti leikurinn að vera skildusigur...
sigvardur
 
Posts: 8
Joined: Mon Aug 24, 2009 1:41 pm

Re: Hvað fór úrskeiðis?

Postby Ármann » Thu May 06, 2010 1:42 pm

Ætla bara að minna menn á að kjósa Eboué í dag, ekki þessa þrjá skítaflokka sem eru í boði! Eboué for PM!!!
Ármann Óskarsson, alfræðingur
Ármann
 
Posts: 11
Joined: Mon Aug 31, 2009 11:28 pm


Return to Arsenal F.C.

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest

cron