Veturinn sem var að liða.

Hér er umræðan um allt sem tengist Arsenal F.C.

Moderator: Stjórnandi

Veturinn sem var að liða.

Postby Maggip » Mon May 10, 2010 4:45 pm

Sæl Öll

Ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á því að hafa ekki fjallað um seinustu leikina í vetur en vegna vinnu þá hafði ég hreinlega ekki tíma að þessu sinni. Einnig vil ég þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á spjallið og lásu upphitanir og aðra þræði spjallsins og sérstaklega vill ég þakka þeim sem sáu sér fært á því að taka þátt í þeim umræðum sem áttu sér stað.
Tímabilið endaði eins og það endaði og við vitum öll hvernig það var, fátt sem þar þarf að nefna. en núna er bara að vona að Wenger stoppi í þau göt sem þarf á að halda og horfa bjartsýn til framtíðar og mæta kát aftur næsta haust og styðja okkar ástkæra lið aftur til sigurs! Ég mun verða hér að skrifa upphitanir og vonandi sjá fleirri sér fært að segja sína skoðun á þeim eða hverju sem þeim liggur á hjarta. Takk fyrir mig í bili :).

Kær þriðjasætiskveðja
kv.
Magnús P. Haraldsson
Klúbbmeðlimur #792
User avatar
Maggip
 
Posts: 90
Joined: Tue Aug 25, 2009 9:36 am
Location: Reykjavík

Re: Veturinn sem var að liða.

Postby okey » Fri May 14, 2010 11:30 am

Atgerfisflótti er enn eitt vandamálið sem Wenger þarf að takast á við. Kostnaðurinn við vallarbygginguna, síhækkandi laun og kaupverð leikmanna, innkoma miljarðamæringa í rekstur keppinauta og árangursleysi síðustu 5-6 ára er farið að segja til sín. Nokkrir heimsklassa leikmenn hafA yfirgefið okkur m.a. Henry, Veira, og Hleb. Aðrir komið í staðinn þó mest óharðnaðir, óreyndir leikmenn sem hafa ja.....sumir ekki risið undir væntingum. Afleiðingin er titlaleysi og á köflum áberandi metnaðarleysi. Enn önnur afleiðing er atgerfisflótti og ummæli höfð eftir bæði Arshavin og Fabregas í fjölmiðlum að undanförnu er því miður ferli sem við höfum séð áður þ.e. það bendir margt til þess að þessir karlar séu að fara, ef ekki núna þá fljótlega. Það eru að verða full mörg göt í þessu liði til að Wenger geti fyllt upp í þau miðað við að hann hirði restarnar eftir að chel$ky, manju, city, tottenham, liverpool, eru búnir að velja það besta.
Eyjólfur Valgarðsson.
okey
 
Posts: 65
Joined: Sat Aug 22, 2009 11:26 am


Return to Arsenal F.C.

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest