Þú ert hér: Forsíða » Klúbburinn » Lög klúbbsins
Print this page
Reglur klúbbsins

Lög Arsenal klúbbsins á Íslandi

I. Heiti félagsins, heimili, tilgangur og félagsform.

1.gr.
Félagið heitir "Arsenalklúbburinn á Íslandi". Enskt hjáheiti er "Arsenal FC Supporters Club Iceland". Skammstafað ASCI.

2.gr.
Heimili félagsins er lögheimili formanns stjórnar þess á hverjum tíma. Varnarþing félagsins er í Reykjavík.

3.gr.
Tilgangur félagsins er að vera vettvangur fyrir alla stuðningsmenn Arsenal F.C. á Íslandi. Félagið skal leitast við að gefa út fréttabréf á því formi sem henta þykir hverju sinni, standa fyrir ferðum á leiki erlendis, aðstoða félagsmenn við að útvega Arsenalvarning og standa fyrir upplýsingamiðlun fyrir félagsmenn á heimasíðu félagsins á Internetinu. Jafnframt er stjórn félagsins heimilt að gera annað það sem nauðsynlegt þykir svo samræmist framangreindum tilgangi félagsins.

4.gr.
Félagið er áhugamannafélag. Það er ekki rekið í hagnaðarskyni og mun ekki stunda neinn atvinnurekstur né heldur aðra fjárhagslega starfsemi, umfram það sem nauðsynlegt er til að stuðla að tilgangi þess samkvæmt 3.gr.

II. Félagsmenn.

5.gr.
Félagsmenn hvers tímabils eru allir sem hafa skráð sig í félagið og greitt félagsgjald.

6.gr.
Félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald njóta fullra félagsréttinda samkvæmt lögum þessum og þeirra hlunninda sem félagið leitast við að afla félagsmönnum.

7.gr.
Stjórn félagsins getur tekið ákvörðun um brottvikningu félaga úr klúbbnum ef þeir, sem fulltrúar klúbbsins innan lands eða erlendis, hegða sér með ótilhlýðilegum hætti. Skal slík ákvörðun vera einróma.

III. Reiknings- og starfsár.

8.gr.
Reiknings- og starfsár félagsins telst vera frá 16. maí til 15. maí ár hvert.
Árleg félagsgjöld skulu miðast við reikningsár félagsins. Fjárhæð og greiðslufyrirkomulag skal ákveða á aðalfundi ár hvert.

IV. Aðalfundur og almennir félagsfundir.

9.gr.
Aðalfundur Arsenalklúbbsins á Íslandi hefur æðsta vald í málefnum félagsins.
Aðalfund skal halda í maí, fyrsta laugardag eftir síðasta leik tímabilsins ár hvert og skal stjórn félagsins boða til hans með minnst 7 daga fyrirvara með tryggum hætti, t.d. með tölvupósti.
Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Auk þess skal boða til almenns félagsfundar að kröfu tveggja stjórnarmanna eða ef 1/5 hluti félagsmanna fer fram á það skriflega við stjórn félagsins.
Afl atkvæða ræður úrslitum um afgreiðslu mála á fundum félagsins, sbr. hins vegar 10 gr.

10.gr.
Lagabreytingar verða aðeins bornar upp á aðalfundi eða almennum félagsfundi og þurfa samþykki 2/3 hluta félagsmanna sem eru mættir og greiða atkvæði.
Lagabreytingartillögum skal koma skriflega á framfæri við stjórn félagsins minnst 14 dögum fyrir aðalfund. Ef slík tillaga hefur komið fram skal upplýsa um slíkt í fundarboði og greina frá efni tillögunnar.

11.gr.
Verkefni aðalfundar eru eftirfarandi:
a) Kjör fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar lögð fram.
c) Endurskoðaðir reikningar stjórnar lagðir til samþykktar.
d) Breytingar á lögum félagsins.
e) Ákvörðun á félagsgjaldi fyrir næsta starfsár.
f) Kjör stjórnar.
g) Kjör endurskoðanda.
h) Önnur mál.

V. Stjórn félagsins.

12.gr.
Stjórn Arsenalklúbbsins á Íslandi skipa fimm aðalmenn og tveir til vara.  Aðalfundur skal fyrst kjósa formann sérstaklega. Síðan skal kjósa tvo stjórnarmenn og tvo til vara auk eins endurskoðanda. Stjórnin skiptir með sér verkum að öðru leyti en því, að formaður er kosinn sérstaklega á aðalfundi.
Formaður félagsins er kosinn til tveggja ára í senn. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir tveir í einu til tveggja ára í senn, varamenn í stjórn og endurskoðandi eru kosnir til eins árs. Framboðum til stjórnarkjörs skal skila eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.
Félagsmenn sem mæta á aðalfundinn fá atkvæðisrétt svo lengi sem þeir eru skuldlausir. Umboð skuli berast stjórn eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund.

13.gr.
Stjórnarmenn verða að vera félagsmenn.

14.gr.
Stjórn félagsins fer með málefni þess milli aðalfunda innan ramma þessara laga. Stjórnin tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og er ábyrg fyrir fjárreiðum og skuldbindingum þess gagnvart öðrum aðilum.

15.gr.
Stjórnarfundur er ályktunarhæfur ef meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda með minnst viku fyrirvara með tryggilegum hætti. Skulu varamenn taka sæti í stjórn í réttri röð eftir atkvæðafjölda á aðalfundi.

VI. Gildistaka.

16.gr.
Lög þessi tóku gildi 16. október 2004. Breytt með kosningu 28. október 2006 (tóku gildi 27. janúar 2007).
---
Samþykkt á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi 16. október 2004.
Staðfest á stjórnarfundi, Reykjavík, 16. október 2004.
---
Breytingar samþykktar á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi 28. október 2006.
Breytingar staðfestar á stjórnarfundi, Reykjavík, 27 janúar 2007.

Breytingar samþykktar á aðalfundi Arsenalklúbbsins á Íslandi haldinn 19. maí 2008.

Arsenal - Bolton
Úrvalsdeildin - Enirates Stadium - 11.09 2010
Blackburn 1 - 2 Arsenal
Úrvalsdeildin - Ewood Park - 28.08 2010
Síðustu 6 leikir: J S S J S S
Stig: 7

Miðar á leik
Skráning
Spjallborðið
Ertu ánægð/ur með byrjunina hjá Arsenal?

Arsenalklúbburinn á Íslandi


Stofnaður: 15. október 1982

Meðlimir: 1204

Stjórn:

Sigurður Enoksson Formaður
S. Hilmar Guðjónsson Varaformaður
Kjartan Fr. Adólfsson Gjaldkeri
Sigurður Ingi Svavarsson Ritari
Þorgrímur Hálfdánarson Meðstjórnandi


Símanúmer: 482-3977
Kennitala: 620196-2669
Banka og reikningsnr.: 0143-26-1413

 

Höfundarréttur © 2009 Arsenal klúbburinn á Íslandi