Kjartan tók við stjórn fundarins, og byrjaði hann á að biðja fundarmenn að minnast látins félaga með því að rísa úr sætum, síðan las formaður skýrslu stjórnar (sjá fyrir aftan fundargerð og í möppu)
Svaraði fyrirspurnum og var skýrslan að því loknu samþykkt .
Mættir voru 24 félagar og voru alls 42 atkvæði á fundinum.
Gjaldkeri fór yfir reikninga félagsins (sjá fyrir aftan fundargerð og í möppu) las þá upp og útskýrði mjög vel, nokkur umræða varð um reikninga félagsins, Jakob Þór spurði m.a. um öryggismál varðandi eignir klúbbsins og var því vísað í önnur mál .
Fundarstjóri ræddi næst um árgjöld félagsins og lýsti þeim reglum sem í gildi eru, gjaldkeri bar upp tillögu stjórnar um óbreytt árgjald Kr: 2,590,- Jakob Þór spurðist fyrir um gjöld annara klúbba, formaður svaraði því til að við hefðum góða viðmiðun og okkar reglur kæmu vel út fyrir t.d.barnafólk og stórar fjölskyldur.
Næst á dagskrá var kjör stjórnarmanna , í ár er kosið um 2 sæti í stjórn félagsins til tveggja ára og eru 3 í framboði
Það eru: Jakob Þór Haraldsson, Sigurður Hilmar Guðjónsson og Þorgrímur Hálfdánarson
Lýsti fundarstjóri síðan framkvæmd kosninganna og reglum varðandi umboð, gaf fundarstjóri síðan frambjóðendum kost á að kynna sig.
Jakob Þór : kynnti sig sem dómara og þjálfara og mikinn Arsenalaðdáenda jafnframt sem hann hrósaði stjórn klúbbsins fyrir þá góðu fjárhagslegu stöðu sem klúbburinn er í.
Hilmar: Búin að vera í stjórn í nokkur ár uppalin í fótbolta, með BA í hagfræði og MA í masterfræði
Þorgrímur: í stjórn klúbbsins síðan 2002 fyrst í varastjórn síðan í aðalstjórn uppalinn í Arsenalanda.
Fundarstjóri boðaði síðan skriflega kosningu, dreift var atkvæðaseðlum og síðan gengu kjörstjórnarmenn um salinn með forláta húfu og söfnuðu saman atkvæðaseðlum, kjörstjórn fór síðan afsíðis og taldi atkvæðinn, formaður kjörstjórnar lýsti kjöri, úrslit kosninga fóru þannig að kjörnir fulltrúar til næstu 2 ára eru:
Sigurður Hilmar 40 athvæði
Þorgrímur 38 athvæði
Fundarstjóri þakkaði Jakobi Þór áhugann og vonar að svo verði áfram
Næst á dagskrá var að kjósa endurskoðanda og var stungið upp á Arnari Gíslasyni og var það samþykkt, varamenn í stjórn klúbbsins til eins árs voru síðan sjálfkjörnir
Síðasti liðurinn var önnur mál:
Upp kom umræða um öryggismál og spunnust umræður um það, þar sem meðal annars var bent á að það kosningarfyrirkomulag sem nú er í gildi eigi að koma í veg fyrir óvarlega ráðstöfun eigna klúbbsins, þ.e. þar sem 2 stjórnarmenn eru kosnir til 2 ára í senn sitthvort árið, einnig lýsti Hilmar samstarfi okkar við ferðaskrifstofu varðandi hópferðir þar sem fram kom að klúbburinn sem slíkur er ekki í ábyrgðum varðandi ferðarof og annað, spunnust nokkrar umræður um þessi mál síðan ákveðið að vísa öryggismálum til stjórnar sem mun skoða þessi mál, umræða síðan um heimasíðuna og fyrirspurn frá Jakobi varðandi aðstoð og boð fyrir langveik börn á leiki, Formaður skýrði síðan frá stefnu stjórnar varðandi þessi mál og sagði frá hvernig klúbburinn hefur sinnt þessum hópi bæði með ferðum á leiki og styrki hér heima,
Síðan spunnust miklar umræður um að fá auglýsingar og styrk i. Jakob spurði hvort hægt væri t.d. að halda happdrætti, að fá Stefán Hilmars til að trekkja á fundi/leiki , hafa málverkauppboð ýmsar keppnir og uppákomur tilboð á barnum og ýmislegt fl. Formaður og fleiri svöruðu að hugmyndir væru góðar en hluti af þessum hugmyndum væru óraunhæfar.
Rætt síðan um fundarferðir, einnig bent á að fá birtar myndir á heimasíðunni, hvetja félaga til að skrifa á síðuna, fá einhverja gulrót á síðuna sem hvetur félaga til að vera virkari,
Skorað á stjórn að ná yfir arsenal.is ef ekki tekst, reyna þá að láta loka síðunni, fundarstjóri sagði frá ástæðum að hætt var samstarfi við arsenal.is hversu stirðlega gekk að halda þessu gangandi og þetta samstarf var hreinlega orðið skaðlegt klúbbnum, og ákveðið var að eignast eigið lén, Arsenalfc.is
Tillaga frá Jakobi að kaupa lenið arsenal.is, bent á að ólöglegt er að höndla með lén.
Vísað til stjórnar að reyna með öllum ráðum að eignast eða loka arsenal.is.
Fundarstjóri sagðist vera á móti slíkum aðgerðum, slíkar aðgerðir gætu einungis orðið skaðlegar fyrir báða aðila. Það væri ekki jákvætt fyrir Arsenalklúbbinn eða jákvæða Arsenalumræðu að standa í þannig deilumálum. Formaður benti líka á, að það hlyti að vera jákvætt að hafa tvær vefsíður sem fjölluðu um okkar yndislega félag Arsenal og miðlaði fréttum og upplýsingum til Arsenalaðdáenda.
Fyrirspurn kom úr sal varðandi fundi sem stjórnarmenn mæta á í London,
Formaður skýrði og lýsti málefnum þessara funda tilgangi þeirra og þörf, og lýsti tengslum sem þessir fundir hafa skapað, formaður sagði þetta hafa mjög góð áhrif á samstarf Arsenalklúbbanna varðandi miðaútvegun og fl. Sigurður Hilmar lýsti fundi sem hann fór á í London með Trevor Saving og kom fram að ýmislegt sem rætt var þar er komið í framkvæmd og annað sem er á leiðinni í framkvæmd.
Miklar umræður spunnust um hin ýmsu mál, áskorun um að tryggja sem best barnastarf innan klúbbsins, Jakob stakk upp á átaki í fjölgun félaga, formaður svaraði því til að stjórnin væri ávallt að vinna í þeim málum, síðan umræða um tengsl við fjölmiðla, en Arsenalklúbburinn hefur ekki átt upp á pallborðið hjá þeim, engin skýring, nema íþróttafréttamenn sem mestu ráða eru ekki Arsenalmenn, Sigurður Hilmar kvaðst halda því til streitu að ná sterkari tengslum við fjölmiðla og ekki gefast upp.
Fundarstjóri afhenti formanni fundarstjórn, formaður þakkaði fundarfólki góðan og málefnalegan fund og þakkaði sérstaklega þeim 3 konum sem voru á fundinum og sleit síðan fundi kl 21,40
Sigurður Ingi Svavarsson fundarritari.
Skýrsla stjórnar
Keppnistímabilið 2009-2010 hófst með væntingum og öllu tilheyrandi. Stjórn klúbbsins hélt ótrauð áfram að reyna fjölga meðlimum klúbbsins og breiða boðskapinn út eins og hún gat. Farið var á 2 fundi erlendis hjá Arsenal FC . Þann fyrri 17.okt og fóru í þá ferð þeir Þorgrímur Hálfdánarsson og Sigurður Enoksson og þann seinni sem var um páskana 3.apríl þá fór Sigurður Enoksson á fundinn.
Þar var einnig undirritaður samningur milli Úrval-Útsýn og Arsenalklúbbsins til 2 ára en með endurskoðunarákvæðum eftir 1 ár. Samvinna okkar við ferðaskrifstofuna hefur gengið með ágætum og flest allt gengið upp þó að gosið hafi reynt að koma í veg fyrir það.
Farið var í 3 ferðir á þessu tímabili 29.nóv á móti Chelsea (0-3) 20.feb á móti Sunderland(2-0) og þá þriðju á móti Man.City 24.apríl(0-0) Samtals fóru í þessar ferðir uþb 150 manns á vegum klúbbsins.
Ævintýrin voru nú mest í kringum hópferðina á Man.City Þá var gosið byrjað með látum og spurning um hvort ,hvenær og hvaðan . Loksins kom það í ljós að farið yrði á fimmtudagskvöld í stað föstudagsmorgun. Og heimferðin varð einnig eftirminnileg fyrir alla. Allir komnir uppá Emirates á leið í skoðunarferð um völlinn þá kom kallið . Allir upp á hotel og út á völl . Allt þetta gekk mjög vel og eiga Sigurður Ingi og Þorgrímur hrós fyrir röggsemi og ákveðni í samskiptum við bæði við ferðaskrifstofuna og farþegana og að koma öllum heim á klakann. Þakka ykkur kærlega fyrir það félagar.
Skýrsla um miðamál mun koma frá formanni miðanefndar og reikningar félagsins frá gkjaldkera.
Útbreiðslumál
Fórum i ferð til Húsavíkur og Akureyrar um helgina 2-4 okt . Með í för voru Hilmar,Þorgrímur .Kjartan og Sigurður formaður.
Byrjuðum á Húsavík laugardaginn 3.okt. og þar tóku á móti okkur Jónas Emilsson og Sveinn Rúnar ásamt uþb 30 Húsvíkingum og var farið á veitingastaðinn hjá Jónasi og þar var klúbburinn kynntur og farið í spurningakeppni. Varningur gefinn og spjallað um heima og geima og eiga Húsvíkingar þakkir skildar fyrir gestrsini sína. Einnig vil ég þakka Ágústi Óskarssyni kærlega fyrir kaffiboðið.Jónas og aðrir Húsvíkingar . Takk fyrir okkur.
4.okt tóku Akureyringar á móti okkur á veitingastaðnum Keilan og horfðum við á leik Arsenal-Blackburn sem endaði vel 6-2 en í hálfleik þá heiðruðum við Harald Gunnþórsson og gerðum við hann að heiðursfélaga númer 11 og var hann hrærður og ánægður mjög þegar formaður afhenti honum viðurkenninguna. Alls komu um 40 manns á þessa uppákomu hjá okkur og gáfum við varning og töluðum við fólkið þarna og var það forvitnilegt og skemmtilegt. Viljum sérstaklega þakka Svanbergi Snorrassyni fyrir hjálpina á Akureyri.
Formaðurinn fór svo til Þingeyrar og boðaði til samkomu á veitingastaðnum Veitingahornið til að horfa á Arsenal-Man.City 24.apríl. Það komu 30-40 manns að horfa á þennan leik og þykir mér það glæsilegt hjá Þingeyringum. Fólk kom úr nágrannbyggðalögum og hafði gaman . Þetta var auglýst í Bæjarins besta og á Þingeyrarvefnum. Varningi var útdeilt þarna og var fólk ánægt með að einhver komi og hitti það . Bræðurnir Sigmundur og Ragnar (þó sérstaklega Sigmundur) eiga frábærrar þakkir skildar fyrir gestrisni og hugguleg heit. Sigga frænka fær líka þakkir fyrir frábæra gestrisni og þurfa að hafa okkur hjá sér .
9 maí átti Neistinn félag hjarveikra barna afmæli varð 15 .ára. Af því tilefni gaf Arsenalklúbburinn á Íslandi áritaða treyju af leikmönnum liðsins 2009-2010 til Neistans .
Mikið var gaman að sjá Össur Skarphéðinsson með Arsenaltrefill um hálsin.
Félögum í klúbbnum fækkaði á milli ára en vonandi náum við hæstu hæðum aftur og reynum að gera betur á næsta ári.
Alltaf má gera betur og hefur stjórnin talað saman um að við þyrftum að sýna okkur meira. Og vera með uppákomur á leikdögum og er það í athugun .
Margir komu á tímabilinu á Ölver að horfa á leiki og er okkar stefna að halda Ölveri áfram sem okkar stað til að koma og horfa á Arsenal spila .
Fundir . Stjórnarfundir voru 9 á tímabilinu og ýmis mál komu upp og erum við að vinna ísérstaklega í því sem við kemur miðamálum.
Svo í lokin vil ég þakka stjórnarmönnum samstarfið á þessu starfsári og vonandi mun klúbburinn dafna og stækka á komandi leiktíð. Einnig vil þakka Maidstone klúbbnum í Englandi fyrir ómetanlega hjálp við að koma mönnum á völlinn á síðasta tímabili.
Stjórn Arsenalklúbbsins á Íslandi
![]() |
| Arsenal - Bolton |
| Úrvalsdeildin - Enirates Stadium - 11.09 2010 |
![]() |
| Blackburn 1 - 2 Arsenal |
| Úrvalsdeildin - Ewood Park - 28.08 2010 |
![]() |
| Síðustu 6 leikir: J S S J S S |
| Stig: 7 |

Stofnaður: 15. október 1982
Meðlimir: 1204
Stjórn:
| Sigurður Enoksson | Formaður |
| S. Hilmar Guðjónsson | Varaformaður |
| Kjartan Fr. Adólfsson | Gjaldkeri |
| Sigurður Ingi Svavarsson | Ritari |
| Þorgrímur Hálfdánarson | Meðstjórnandi |
Símanúmer: 482-3977
Kennitala: 620196-2669
Banka og reikningsnr.: 0143-26-1413