Aðalfundur Arsenalklúbbsins á Íslandi 2009 haldin 24 maí í Ölveri Reykjavík kl: 13,00
Sigurður Enoksson formaður klúbbsins setti fundin, og stakk upp á Gústaf sem fundarstjóra
og Sig, Inga sem ritara og var það samþykkt.
Fundarstjóri tók við stjórn og kynnti dagskrá fundarins. Mættir voru 13 felagar og að auki 42 umboð.
1) Sigurður Enoksson tók fyrstur til máls og las upp skýrslu stjórnar (sjá fylgiskjal í möppu) og fór yfir síðasta ár einnig sagði hann frá ferðum á leiki, ferð stjórnarmanna á Hornafjörð, og ræddi vefsíðumál, skýrsla stjórnar samþykkt.
2) Reikningar félagsins lagðir fram Kjartan gjaldkeri skýrði reikninga sem síðan voru samþykktir.(fylgiskjöl í möppu)
3) Eingar breitingar á lögum lágu fyrir fundinum.
4) Árgjald næsta ár, tillaga stjórnar um 2,590,- árgjald lagt fram og samþykkt
5) Kjör stjórnar: Kosning fór fram og varð niðurstaða eftirfarandi:
Aðalstjórn: Varastjórn:
Ómar 7 atkvæði Jakob 5 atkvæði
Kjartan 51 atkvæði Þór 53 atkvæði
Sig,Ingi 50 atkvæði Stefán 50 atkvæði
Formanskjör: Sigurður Enoksson sjálfkjörin þar sem hann einn bauð sig fram
6) Önnur mál:
Kjartan skýrði miðamál á árinu einnig hversu ílla fall krónunar fór með klúbbinn v/ miðakaupa Kjartan skýrði einnig frá nýrri netsíðu klúbbsins sem væri að fara í loftið í eign klúbbsins og sagði frá þeirri miklu óánægju sem verið hafi út af síðunni arsenal.is sem er í einkaeigu enn við höfum borgað rekstur hennar, Kjartan sagði einnig frá samskiptum við eiganda síðunar sem var ekki að ganga, og mun ný síða fara í loftið á næstu dögum þ.e. ARSENALFC.is Ágúst talaði um hve nauðsynlegt það væri að halda úti góðri síðu. Gústav fagnaði nýrri síðu sem hann meðal annars stakk upp á á síðasta aðalfundi, Gústav beindi því til stjórnar að nauðsynlegt væri að hafa sterka fréttaskýringar á síðunni t.d. fyrir og eftir leik, frekar að hafa minna blogg. Ýmsir ræddu bloggið til dæmis væri nauðsynlegt að bloggað væri undir eigin nafni, margt var talið gott og annað slæmt í sambandi við bloggið voru mjög margar skoðanir á því. Margt annað rætt t.d. væntanlegar ferðir, við hvaða ferðaskrifstofur ætti að versla, allt er þetta í skoðun að sögnm formans og fundir framundan með ferðaskrifstofum. Frjálslegar umræður spunnust um ferðamáta t.d. að fólk kæmi sér sjálft með flugi og á hótel einnig var bent á að stjórnin mætti vera sýnilegri, reyna að sameina hópin betur fyrir leiki í genum nýja síðu, auka þáttöku barna í að koma og horfa á leiki og ýmisl fl.
Fundarstjóri þakkaði síðan góðan fund og afhenti formanni stjórn fundarins sem hann síðan þakkaði fundarmönnum og sleit fundi kl: 14,30
Fylgiskjöl fundarins í möppu eru: Dagskrá fundarins, skýrsla formanns, reikningar félagsins
----- -----------------------------------------------------------------------
Sigurður Ingi Svavarsson Ritari
![]() |
| Arsenal - Bolton |
| Úrvalsdeildin - Enirates Stadium - 11.09 2010 |
![]() |
| Blackburn 1 - 2 Arsenal |
| Úrvalsdeildin - Ewood Park - 28.08 2010 |
![]() |
| Síðustu 6 leikir: J S S J S S |
| Stig: 7 |

Stofnaður: 15. október 1982
Meðlimir: 1204
Stjórn:
| Sigurður Enoksson | Formaður |
| S. Hilmar Guðjónsson | Varaformaður |
| Kjartan Fr. Adólfsson | Gjaldkeri |
| Sigurður Ingi Svavarsson | Ritari |
| Þorgrímur Hálfdánarson | Meðstjórnandi |
Símanúmer: 482-3977
Kennitala: 620196-2669
Banka og reikningsnr.: 0143-26-1413