Þú ert hér: Forsíða » Klúbburinn » Aðalfundir » Aðalfundur 2008
Print this page
Aðalfundur 2008

Aðalfundur Arsenalklúbbsins á Íslandi árið 2008
Haldin í fundarsal Hitaveitu Suðurnesja Reykjanesbæ 18 maí kl: 14,00

Sigurður Enoksson setti fundinn og stakk upp á Gústafi Daníelssyni sem fundarstjóra og Sigurði Inga Svavarssyni sem fundarritara og var það samþykkt.

Fundarstjóri tók við stjórn og kynnti dagsskrá fundarins. Mættir voru 20 félagar og umboð voru 39.

1) Sigurður Enoksson tók fyrstur til máls og las upp skýrslu stjórnar ( sjá fylgiskjal í möppu merkt aðalfundur 2008 no 1) Skýrsla samþykkt.

2) Sigurður Hilmar Kynnti miðamál félagsins og reglur um hópferðir.

3) Gjaldkeri lagði fram reikninga félagsins og fór yfir þá skýrsla samþykkt.

4) Þá kynnti Þorgrímur lagabreytingar og voru þær kynntar hver af annari og bornar jafnóðum undir fundin, þetta voru 4 lagabreitingar og voru allar samþykktar mótatkvæðalaust.

5) Sigurður Enoksson tók næst til máls og lagði fram tillögu um óbreitt árgjald og að stórfjölskyldur með sama lögheimili borguðu 2 árgjöldi á fullu verði 3 á ½ og síðan aðrir fjöskyldumeðlimir frítt

6) Stjórnarkjör kosið var samkv. nýsamþyktum lögum og voru Varamenn kosnir Stéfán Bragi og Þór Stéfánsson, endurskoðandi kosin Sigurgeir Helgi Guðjónsson
Þá voru 3 í framboði í 2 sæti í aðalstjórn og var kosið á milli þeirra
Sigurðs Hilmars-Þorgríms Hálfdánars og Jakobs Þórs kosning fór þannig að Þorgrímur fékk 59 atkvæði , Sigurður 58 og Jakob 1. Sigurður og Þorgrímur því rétt kjörnir í stjórn

Næst á dagskrá voru önnur mál

Kjartan Björnsson tók til máls og lísti gleði yfir góðri fjárhagsstöðu klúbbsins og sagðist styðja stjórn klúbbsins heilshugar, fór svo vítt og breitt um málefni arsenalaðdáenda og fl, óskaði meðal annars eftir því að næsti aðalfundur yrði á Selfossi að ári.
Sagði frá mjög ánægjulegri hópferð með yfir 100 stuðningsmönnum í okt sl.
Taldi að betur mætti gera í að kynna klúbbin í fjölmiðlum, benti á að arsenal væri undir í fjölmiðlum miðað við aðra topp klúbba, skoraði á stjórn að hafa heiðursmannalínk á heimasíðunni, og fl.
Sigurður Ingi fór næst í pontu og sagði frá röggsemi stjórnarmanna og bennti á þá miklu uppsveiflu sem orðið hefur í fjármálum klúbbsins miðað við fyrri ár og taldi ekki hafa verið vel haldið á spilum áður,
Kjartan benti á að aðeins 1 kona væri á fundinum og hældi henni sérstaklega
Gústaf ræddi málefni félagsins og gera mætti miklu betur í sambandi við barnastarf og hvatti eindregið til þess að efla það.
Einnig benti Gústaf á að klúbburinn á ekki lenið Arsenal.is enn telur að klúbburinn ætti að eignast það, og komu 3 tillögur fram frá Gústafi .

1) Skorar á stjórn klúbbsins að ganga til samninga við eiganda lensins og fá það keypt ef ekki að stofna þá aðra síðu í eigu klúbbsins , tillaga samþykkt með 11 atkvæðum 5 á móti

2) Skora á stjórnina að loka aðgangi að bloggsíðu klúbbsins nema fullgildum félögum , tillaga samþykkt með 9 atkvæðum 5 á móti

3) Áskorun til stjórnar að efla barnastarf klúbbsins , samþykkt samhljóða
Kristján Geir eigandi lensins kom þá í pontu og lýsti því yfir að lenið væri ekki falt undir neinum kringumstæðum,

Kjartan Björnsson taldi fólk vera með óþarfa áhyggjur af þessu leni taldi það í góðum höndum
Tillaga frá Sigurði Inga : að fyrri samþykkt um að stofna len ef arsenal.is fengist ekki keypt yrði fellt úr gildi samþykkt með 19 atkv 1 á móti
Fundarstjóri afhenti síðan formanni fundin sem þakkaði góðan fund og sleit fundi
Um kl: 16.00


____________________________________________________________
Sigurður Ingi Svavarsson Fundarstjóri

Arsenal - Bolton
Úrvalsdeildin - Enirates Stadium - 11.09 2010
Blackburn 1 - 2 Arsenal
Úrvalsdeildin - Ewood Park - 28.08 2010
Síðustu 6 leikir: J S S J S S
Stig: 7

Miðar á leik
Skráning
Spjallborðið
Ertu ánægð/ur með byrjunina hjá Arsenal?

Arsenalklúbburinn á Íslandi


Stofnaður: 15. október 1982

Meðlimir: 1204

Stjórn:

Sigurður Enoksson Formaður
S. Hilmar Guðjónsson Varaformaður
Kjartan Fr. Adólfsson Gjaldkeri
Sigurður Ingi Svavarsson Ritari
Þorgrímur Hálfdánarson Meðstjórnandi


Símanúmer: 482-3977
Kennitala: 620196-2669
Banka og reikningsnr.: 0143-26-1413

 

Höfundarréttur © 2009 Arsenal klúbburinn á Íslandi