Þú ert hér: Forsíða » Fréttir
Print this page
Fréttir
21.07.2010

Sigur gegn Sturm Graz


Arsenal spilaði gegn Sturm Graz sem endaði í fjórað sæti í austurrísku deildinni í fyrra og vann nokkuð auðveldlega 0-3.

Arsenal byrjaði leikinn svona:

Fabianski
Nortveit-Djourou-Vermaelen-Traore
Nasri-Frimpong-Wilshere
Walcott-Chamakh-Arshavin

Arsenal voru töluvert betri í fyrri hálfleik en kæruleysi í vörninni nokkrum sinnum var eitthvað sem Arsenalmenn vilja ekki sjá í vetur. En fram á við snérist allt um Nasri. Allar góðar sóknir fóru í gegnum hann og skoraði hann bæði mörk fyrri hálfleiks. Það fyrr með því að hirða lausan bolta og janfram leggja hann fyrir sig með vinstri og negla svo með hægri í bláhornið. Seinna markið kom svo beint úr aukaspyrnu.

Í hálfleik komu svona Rosicky, Szczesny, Koscielny, Gibbs, Eastmond, Lansbury og Emmanuel-Thomas inn á.

Liðið var því:

Szczesny
Nortveit-Djourou-Koscielny-Gibbs
Rosicky-Eastmond-Lansbury
Walcott-E-Thomas-Wilshere

Fljótlega í síðari hálfleik skoraði Arsenal sitt þriðja mark. Lansbury skoraði en undirbúningurinn hjá E-Thomas var frábær.

Á 60. mínútu kom Traore aftur inn á fyrir Wilshere.

Annað markvert gerðist varla. Arsenal fengu tækifæri en nýttu þau ekki, allt fór í gegnum besta leikmann síðari hálfleiks, Jay E-Thomas.

Fréttaflokkur: Æfingaleikir
Arsenal - Bolton
Úrvalsdeildin - Enirates Stadium - 11.09 2010
Blackburn 1 - 2 Arsenal
Úrvalsdeildin - Ewood Park - 28.08 2010
Síðustu 6 leikir: J S S J S S
Stig: 7

Miðar á leik
Skráning
Spjallborðið
Ertu ánægð/ur með byrjunina hjá Arsenal?

Arsenalklúbburinn á Íslandi


Stofnaður: 15. október 1982

Meðlimir: 1204

Stjórn:

Sigurður Enoksson Formaður
S. Hilmar Guðjónsson Varaformaður
Kjartan Fr. Adólfsson Gjaldkeri
Sigurður Ingi Svavarsson Ritari
Þorgrímur Hálfdánarson Meðstjórnandi


Símanúmer: 482-3977
Kennitala: 620196-2669
Banka og reikningsnr.: 0143-26-1413

 

Höfundarréttur © 2009 Arsenal klúbburinn á Íslandi